„Ég var búinn að stilla því að ég myndi taka fimmtu vítaspyrnuna en við erum bara allir hetjur,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði Keflavíkur eftir að Keflavík komst í kvöld í bikarúrslita karla í knattspyrnu eftir sigur á Víkingi R. í vítaspyrnukeppni á Nettó-vellinum í Keflavík. Haraldur skoraði úr síðustu spyrnu Keflavíkur í vítakeppninni og tryggði þar með sigurinn.
„Við erum komnir í úrslit núna og erum bara ógeðslega ánægðir með það,“ sagði Haraldur sem fannst leikurinn snúinn enda var mikið rok í Keflavík í kvöld.
„Vindurinn spilaði hrikalega mikið inn í þennan leik á hvort markið sem var. Það var mjög erfitt að sækja hvort sem var með eða á móti vindi.“
Viðtalið við Harald Frey má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.