Uppselt á klukkutíma

Stuðningsmenn Stjörnunnar munu eflaust ekki láta sitt eftir liggja í …
Stuðningsmenn Stjörnunnar munu eflaust ekki láta sitt eftir liggja í Evrópuleiknum annað kvöld. mbl.is/Eva Björk

Miðar á leik Stjörnunnar og pólska liðsins Lech Poznan sem fer fram annað kvöld á Samsung-vellinum í Garðabæ í 3. umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu seldust upp á klukkutíma.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu KSÍ tekur völlurinn 990 manns í sæti og þar af fengu stuðningsmenn Lech Poznan 160 miða. Miðarnir sem Pólverjarnir fengu seldust upp á 15 mínútum. Von er á mikilli stemningu líkt og þegar Stjarnan sló út Motherwell frá Skotlandi í síðustu umferð eftir mikla dramatík.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert