Hlín ekki meira með Breiðabliki

Hlín Gunnlaugsdóttir í leik gegn Fylki í sumar.
Hlín Gunnlaugsdóttir í leik gegn Fylki í sumar. mbl.is/Golli

Miðjumaður­inn reyndi hjá Breiðabliki, Hlín Gunn­laugs­dótt­ir, mun ekki spila meira með liðinu á tíma­bil­inu. Hlín er þó áfram samn­ings­bund­in fé­lag­inu en hefur verið lánuð til HK/Víkings í 1. deildinni út tímabilið.

Hlín hef­ur sam­tals spilað 155 leiki með Breiðabliki í deild og bik­ar og skorað í þeim 15 mörk. Þar af 13 leiki í ár þar sem hún hef­ur skorað tvö mörk. Ljóst er að um mik­inn missi fyr­ir Breiðablik er að ræða en Hlín á að baki fjölda lands­leikja fyr­ir yngri landslið Íslands og hef­ur verið viðloðandi A-landsliðið und­an­far­in ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert