Kjartan Henry: Tek þetta ekki nærri mér

Markahrókurinn Kjartan Henry var að vonaum ánægður með sannfærandi sigur KR á ÍBV í undanúrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld. KR hafði betur 5:2 en leikurinn fór fram í Eyjum. 

„Það er alltaf erfitt að koma til Vestmannaeyja en á sama tíma mjög skemmtilegt. Sjö mörk og fullt af færum en ég er mjög ánægður með að við erum að fara í Laugardalinn í ágúst,“ sagði Kjartan Henry en hann var einnig spurður út í atvik í síðari hálfleik þegar honum og Brynjari Gauta Guðjónssyni lenti saman. Kjartan gerði lítið úr atvikinu og sagði að hann og Brynjar Gauti hefðu hlegið saman eftir það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert