Aron: Svekktur að skora ekki

Úr leik KR og Fjölni í kvöld.
Úr leik KR og Fjölni í kvöld. mbl.is/Eggert

„Ég er rosa svekktur að hafa ekki náð troða inn einu marki og náð í eitt stig í leiðinni því mér fannst við ekki mikið síðra liðið í dag,“ sagði Fjölnismaðurinn Aron Sigurðarson eftir 1:0-tapið gegn KR í 16. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Staðan er vissulega strembin hjá okkur því að við eigum erfiðan útileik á móti FH í næstu umferð og svo heimaleik gegn Keflavík, og  eins og staðan er í dag þá deilum við fallsæti með Fram og þurfum að fara hala inn fleiri stig ef við ætlum okkur ekki að falla,“ sagði Aron við mbl.is eftir leikinn í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert