Kristján: Oftast leikið betur

„Við vorum slakir og höfum oftast leikið betur,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga eftir að lið hans tapaði 2:0 fyrir FH í Pepsi deild karla í Kaplakrika í kvöld.

„Ákvörunartakan hjá okkur var léleg og skydisóknirnar, sem við getum framkvæmt svo vel, gengu ekki upp hjá okkur. Nú er það bara úrslitaleikur í hverri umferð því „pakkinn“ er þéttur og menn geta auðveldlega sogast niður í fallsætin en það er líka hægt að koma sér upp úr þessu,“ sagði Kristján

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert