Stjóri Inter reykti á æfingunni

Walter Mazzarri knattspyrnustjóri ítalska félagsins Inter frá Mílanó fannst ekkert tiltökumál þó hann kveikti sér í sígarettu á Laugardalsvelli í gær á meðan hans menn æfðu á vellinum fyrir leikinn gegn Stjörnunni í kvöld í 4. umferð Evrópudeildar UEFA.

Hvort Mazzarri hafi verið að róa taugarnar eða þetta sé bara eðlilegt að gera á æfingum á Ítalíu skal ósagt látið, en meðfylgjandi eru myndir af Mazzarri reykja á Laugarvalsvellinum í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert