Glódís klár fyrir landsleikinn í kvöld

Glódís Perla Viggósdóttir er klár í slaginn fyrir landsleikinn við …
Glódís Perla Viggósdóttir er klár í slaginn fyrir landsleikinn við Dani í kvöld. mbl.is/Eggert

Glódís Perla Viggósdóttir miðvörður Stjörnunnar er leikfær og getur spilað með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu gegn Danmörku í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli í kvöld.

Glódís hefur verið tæp vegna meiðsla og á þriðjudag sagði Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari Íslands að hann væri svartsýnn á þátttöku Glódsíar í leiknum við Dani.

Greint var frá því í hádegisfréttum RÚV í dag að Glódís væri hins vegar klár í slaginn og ætti því að öllu óbreyttu að spila landsleikinn mikilvæga í Laugardalnum í kvöld.

Landsleikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 19.30 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert