Punyed er í æfingahóp El Salvador

Pablo Punyed hefur átt frábært sumar með Stjörnunni og spilaði …
Pablo Punyed hefur átt frábært sumar með Stjörnunni og spilaði með liðinu gegn Inter Mílanó í vikunni. mbl.is/Árni Sæberg

Pablo Punyed, miðjumaðurinn öflugi í liði Stjörnumanna, hefur verið boðaður í æfingahóp landsliðs El Salvador fyrir Mið-Ameríkukeppnina sem fram fer í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

„Ég er mjög ánægður og einnig mjög spenntur. Ég hef aldrei verið valinn í landsliðið áður og því er þetta stórt skref fyrir mig. Þetta er auðvitað æfingahópur en vonandi næ ég að vinna mér sæti í 23 manna hópnum,“ sagði Punyed við Morgunblaðið í gær en hann hefur átt góðu gengi að fagna með Stjörnuliðinu á leiktíðinni. 

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert