Heimir: Sterkt lið til að byrja á

„Tyrkir eru með sterkt lið til að byrja á. En að stimpla sig inn með sigri á svona liði getur gefið okkur mikið í framhaldinu,“ sagði Heimir Hallgrímsson annar landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu um Tyrkland, sem Ísland leikur við í undankeppni Evrópumótsins 2016, á Laugardalsvelli 9. september. Heimir og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfarar Íslands tilkynntu landsliðshóp Íslands í dag.

„Tyrkir eru með gott lið og deildin í Tyrklandi er góð. Þannig þeir eru nánast með hvern einasta leikmann sem spilar í Meistaradeild Evrópu eða í Evrópudeildinni í vetur. En við eigum aðeins einn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og einn í Evrópudeildinni,“ sagði Heimir við mbl.is í hádeginu.

Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert