Ólafur: Deildin segir ekkert í svona leik

„Deildin segir ekkert núna, þetta er stakur leikur milli tveggja góðra liða og það ræður úrslitum hvernig pressan er höndluð,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, í samtali við mbl.is í aðdraganda bikarúrslitaleiks kvenna í knattspyrnu á morgun þegar Stjarnan mætir Selfossi. 

Margir stuðningsmenn Stjörnunnar flugu til Ítalíu og fylgdust með karlaliði Stjörnunnar mæta Inter í Evrópukeppninni, og Ólafur vonast til að sami hópur fjölmenni á Laugardalsvöllinn á morgun. 

„Það væri best ef hægt væri að lenda bara beint á Reykjavíkurflugvelli,“ sagði Ólafur, en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndskeiði þar sem hann talar meðal annars um hvernig standið sé á þeim lykilmönnum sem glímt hafa við meiðsli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert