Guðmunda: Förum allar stoltar héðan

„Það er leiðinlegt að tapa 4:0 og gefur ekki rétta mynd af leiknum. Hann var jafn í fyrri hálfleik og megnið af seinni hálfleik,“ sagði Guðmunda Brynja Óladóttir fyrirliði Selfoss sem tapaði 4:0 fyrir Stjörnunni í sínum fyrsta bikarúrslitaleik á Laugardalsvelli í dag.

Það var engan bilbug á Guðmundu að finna eftir leikinn þrátt fyrir tapið.

„Það er gaman að ná 2. sæti. Við erum að koma hingað í fyrsta sinn og Stjarnan er langbesta liðið á Íslandi og spilaði þvílíkt flottan leik. Við getum allar farið stoltar héðan,“ sagði Guðmunda og minnti á hve langt Selfoss hefur náð á skömmum tíma.

„Við erum með þvílíkt ungt lið og bara fimm ár síðan við byrjuðum með meistaraflokk. Við byggjum ofan á þetta, og þetta er bara það sem koma skal, að vera í úrslitaleikjum,“ sagði Guðmunda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert