Skagamenn halda uppteknum hætti

Hallur Flosason, til hægri, skoraði sigurmark ÍA í dag.
Hallur Flosason, til hægri, skoraði sigurmark ÍA í dag. mbl.is/Golli

Skagamenn nálgast það óðfluga að endurheimta sæti sitt í efstu deild eftir 1:0-sigur á BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni í dag.

Hallur Flosason skoraði sigurmarkið eftir rúmlega stundarfjórðung, og reyndist það eina mark leiksins. ÍA er nú með 39 stig í öðru sætinu, stigi á eftir toppliði Leiknis. Víkingur Ó er í þriðja sætinu með 32 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert