Grétar Sigfinnur og Jóhann Helgi í bann

Grétar Sigfinnur Sigurðsson.
Grétar Sigfinnur Sigurðsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði þrjá leikmenn úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu í eins leiks bann í dag.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Kjartan Henry Finnbogason, Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Jóhann Helgi Hannesson.

Kjartan Henry hefur yfirgefið KR og er búinn að semja við danska liðið Horsens. Grétar Sigfinnur verður fjarri góðu gamni þegar KR sækir Fylkir heim þann 14. september og Jóhann Helgi verður ekki með Þórsurum þegar þeir fá FH-inga í heimsókn sama dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert