Guðjón Árni: Kærkominn leikur

Bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson sneri aftur inn í byrjunarlið FH eftir langa fjarveru þegar FH-ingar lögðu Framara, 4:2, í Kaplakrika í dag.

„Þetta er fyrsti leikurinn í byrjunarliðinu hjá mér síðan í 2. umferðinni. Þetta var kærkominn leikur og kærkominn sigur,“ sagði Guðjón Árni við mbl.is en Guðjón hefur misst úr marga leiki með sínum mönnum vegna höfuðmeiðsla sem hann varð fyrir.

„Aðstæðurnar voru krefjandi en það var virkilega ljúft að klára þetta með þremur stigum,“ sagði Guðjón Árni sem kom í liðið fyrir Jón Ragnar Jónsson sem tók út leikbann í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert