Stjarnan getur í dag orðið Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum, þegar næstsíðasta umferðin í Pepsi-deildinni fer fram kl. 17.15. Stjörnunni, með markadrottninguna Hörpu Þorsteinsdóttur í broddi fylkingar, dugar að fá stig á heimavelli gegn Aftureldingu sem er í fallsæti. sindris@mbl.is