Ólafur hættur með Gróttu

Leikmenn Gróttu tollera Ólaf þegar sætið í 1. deild varð …
Leikmenn Gróttu tollera Ólaf þegar sætið í 1. deild varð ljóst. Ljósmynd/grottasport.is

Ólafur Brynjólfsson þjálfari karlaliðs Gróttu í knattspyrnu hefur ákveðið að láta af störfum að því er fram kemur á vef félagsins.

Á vef Gróttu kemur eftirfarandi fram;

Í gær tilkynnti Ólafur Brynjólfsson stjórn knattspyrnudeildar og leikmönnum Gróttu að hann myndi ekki sækjast eftir endurráðningu sem þjálfari meistaraflokks félagsins. Ástæður eru af persónulegum toga og hyggst Ólafur taka sér frí frá þjálfun.
Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Ólafi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.“

Undir stjórn Ólafs endaði Grótta í öðru sæti 2. deildarinnar og tryggði sér keppnisrétt í 1. deild að ári.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert