Tillen samdi við FH-inga

Sam Tillen í leik með FH á síðustu leiktíð.
Sam Tillen í leik með FH á síðustu leiktíð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sam Tillen varnarmaður úr liði FH skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið en hann gekk til liðs við FH frá Fram í fyrra og gerði þá eins árs samning.

Tillen átti afar gott tímabil með FH-ingum á síðustu leiktíð þar sem hann var drjúgur að leggja upp mörk fyrir samherja sína. Á undirbúningstímabilinu fótbrotnaði hann illa og hefur ekkert leikið með liðinu í sumar. Hann er hins vegar á góðum batavegi og verður klár í slaginn þegar undirbúningstímabilið hefst fyrir næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert