Baldur skoðar aðstæður hjá SönderjyskE

Baldur Sigurðsson í leik með KR gegn Stjörnunni.
Baldur Sigurðsson í leik með KR gegn Stjörnunni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR í knattspyrnu, mun skoða aðstæður hjá danska félaginu SönderjyskE en þar spilar æskuvinur hans og landsliðskappi, Hallgrímur Jónasson, sem hefur samið við OB og gengur í raðir þess um áramót.

Baldur hefur fengið leyfi frá KR til að skoða aðstæður hjá félaginu en stutt er síðan hann skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við KR og þarf því danska félagið að kaupa hann af Vesturbæjarliðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert