ÍBV ræður þjálfara í dag

Eyjamenn fagna marki í sumar.
Eyjamenn fagna marki í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

ÍBV mun væntanlega tilkynna ráðningu á nýjum þjálfara liðsins í dag en sem kunnugt er hætti Sigurður Ragnar Eyjólfsson með liðið eftir eitt ár í starfi.

Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, var hins vegar þögull sem gröfin þegar hann var spurður hver myndi stýra ÍBV-skútunni næsta sumar. „Það er ekki búið að skrifa undir og svo sem ekkert fast í hendi ennþá en viðræður líta vel út. Vonandi kemur tilkynning um ráðningu á morgun (í dag),“ sagði Óskar seint í gærkvöldi. Þeir Jóhannes Harðarson og Dean Martin hafa verið orðaðir við starfið að undanförnu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert