Óskar Örn samdi við KR-inga

Óskar Örn Hauksson
Óskar Örn Hauksson mbl.is/Eggert

Óskar Örn Hauksson skrifaði í kvöld undir nýjan þriggja ára samning við bikarmeistara KR í knattspyrnu.

Óskar Örn hefur spilað með KR-ingum frá árinu 2007 og er 12. markahæsti leikmaður félagsins með 69 mörk og er fimmti leikjahæsti leikmaður liðsins með 293 leiki.

Óskar var með lausan samning við vesturbæjarliðið og meðal þeirra liða sem höfðu samband við hann voru FH-ingar. Kantmaðurinn skæð,i sem hefur verið einn af bestu leikmönnum KR undanfarin ár, ákvað hins vegar að halda kyrru fyrir hjá þeim röndóttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert