Baldur skoraði fyrir SönderjyskE

Baldur Sigurðsson
Baldur Sigurðsson mbl.is/Ómar Óskarsson

Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær er Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, til skoðunar hjá danska úrvalsdeildarliðinu SönderjyskE.

Baldur lék með varaliði félagsins æfingaleik gegn varaliði Vejle. SönderjyskE hafði betur, 4:1, og skoraði Baldur þriðja mark liðsins að því er fram kemur á stuðningsmannasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert