Markahæstu leikmenn Pepsi-deilda kvenna og karla í knattspyrnu á árinu 2014 fengu í dag afhenta gullskóna frá Adidas, en þeir hafa verið afhentir samfleytt frá árinu 1983.
Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni varð langmarkahæst í Pepsi-deild kvenna með 27 mörk og fékk gullskó annað árið í röð. Gary Martin úr KR varð markahæstur í Pepsi-deild karla með 13 mörk. Á myndinni eru þau með þessa veglegu verðlaunagripi.