Ingvar á leið til Start?

Ingvar Jónsson átti frábært tímabil í marki Íslandsmeistara Stjörnunnar.
Ingvar Jónsson átti frábært tímabil í marki Íslandsmeistara Stjörnunnar. mbl.is/Ómar

Ingvar Jónsson, markvörður Íslandsmeistara Stjörnunnar, gæti verið á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins Start sem þeir Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson eru á mála hjá.

Þetta er fullyrt á vef Aftenbladet í Noregi. Þar er haft eftir Halldóri Birgi Bergþórssyni, umboðsmanni Ingvars, að viðræður séu á viðkvæmu stigi. Halldór segir þó einnig að tvö félög í Noregi og tvö í Svíþjóð séu áhugasöm. Hann segir að framtíð Ingvars skýrist á næstu 7-10 dögum.

Sænska úrvalsdeildarfélagið Åtvidaberg gerði Ingvari tilboð á dögunum sem hann hafnaði.

Ingvar hefur verið einn þriggja markvarða landsliðsins undanfarið og var kjörinn besti leikmaður síðasta Íslandsmóts eftir frábært tímabil með Íslandsmeisturunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert