Ásgeir úr Haukum í Grindavík

Ásgeir Þór Ingólfsson er orðinn leikmaður Grindavíkur.
Ásgeir Þór Ingólfsson er orðinn leikmaður Grindavíkur. Ljósmynd/Grindavík

Grindavík hefur gert samninga við fimm leikmenn á síðustu dögum. Fjórir þeirra voru fyrir hjá félaginu en Ásgeir Þór Ingólfsson bætist í hópinn frá Haukum.

Ásgeir hefur leikið með Haukum nær allan sinn feril utan eins tímabils með Val árið 2012.

Auk hans skrifuðu þeir Marko Valdimar Stefánsson, Matthías Örn Friðriksson, Magnús Björgvinsson og Scott Mckenna Ramsay undir samninga.

Eins og Morgunblaðið greindi frá í dag er hins vegar ólíklegt að markvörðurinn Óskar Pétursson leiki með Grindavík í sumar en hann er sennilega á leið til Svíþjóðar í nám í byrjun ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert