Ólafur Karl Finsen hefur skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Íslandsmeistara Stjörnunnar að því er fram kemur á vef stuðningsmanna félagsins.
Ólafur Karl var hetja Garðabæjarliðsins þegar það tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 2:1 sigri gegn FH í lokaumferðinni en hann skoraði bæði mörk liðsins, það síðara úr vítaspyrnu í uppbótartíma sem hann fékk sjálfur.