Stjarnan í úrslitaleikinn

Arnar Már Björgvinsson (að neðan) átti frábært tímabil í fyrra. …
Arnar Már Björgvinsson (að neðan) átti frábært tímabil í fyrra. Hann skoraði sigurmarkið í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Íslandsmeistarar Stjörnunnar mæta Breiðabliki í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins eftir að hafa unnið ÍBV 2:1 í kvöld í lokaleik 2. riðils.

ÍBV komst yfir í leiknum með marki Bjarna Gunnarssonar en Þórhallur Kári Knútsson jafnaði metin í fyrri hálfleiknum og Arnar Már Björgvinsson skoraði sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik.

Stjarnan fór með sigrinum upp fyrir ÍBV og Keflavík og tryggði sér 1. sæti riðilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert