Jafnar sig hjá Hönefoss

Rasmus Christiansen í leik með ÍBV.
Rasmus Christiansen í leik með ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Rasmus Christiansen, danski miðvörðurinn sem KR-ingar sömdu við í vetur, er þessa dagana við æfingar hjá norska knattspyrnufélaginu Hönefoss.

Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, segir að það sé hins vegar aðeins hluti af endurhæfingu Danans sem er enn að jafna sig eftir krossbandsslit síðasta sumar. Samningur Christiansen við KR er með þeim hætti að honum er heimilt að semja við félag utan Íslands fram í fyrstu viku febrúar en Bjarni reiknar fastlega með því að njóta krafta kappans:

„Hann á vin í Hönefoss og bað um leyfi til að æfa með liðinu. Hann hittir lækni í vikunni og kemur svo.“ sindris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert