Allir með á lokaæfingu (myndskeið)

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er á þessari stundu á æfingu í Astana-Arena, hinum glæsilega og yfirbyggða knattspyrnuleikvangi í höfuðborg Kasakstans, en þetta er lokaæfingin fyrr leik þjóðanna í undankeppni EM á morgun.

Allir leikmenn liðsins eru með á æfingunni og engin teljandi meiðsli í hópnum þannig að Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar hafa úr öllum mannskapnum að velja.

Þeir sögðu á fréttamannafundi fyrir æfinguna að allar aðstæður væru hinar bestu í Astana og allt til fyrirmyndar hjá heimamönnum varðandi aðbúnað.

Íþróttafréttamaður mbl.is var á fyrsta hluta æfingarinnar sem var opin fjölmiðlum fyrstu 15 mínúturnar og þar var meðfylgjandi myndskeið tekið en þar má sjá Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfara stjórna upphitun landsliðsmannanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert