Ísland í 20. sæti á FIFA-listanum

Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir. mbl.is/Golli

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 20. sæti og stendur í stað á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem gefinn var út í morgun.

Af Evrópuþjóðum er Ísland í 11. sæti á eftir Sviss.

Engar breytingar eru á toppi listans. Þýskaland er í efsta sæti en á eftir koma Bandaríkin, Frakkland, Japan og Svíþjóð sem er í 5. sætinu.

Sjá allan FIFA-listann

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert