KA fór illa með Selfoss

Halldór Hermann lék með Val í fyrra en gekk í …
Halldór Hermann lék með Val í fyrra en gekk í raðir KA-manna í vetur. Eggert Jóhannesson

KA fór létt með Selfoss í B-riðli Lengjubikarsins í Akraneshöllinni í dag en þeir gulklæddu skoruðu fjögur mörk gegn engu. Halldór Hermann Jónsson, Ýmir Már Geirsson, Ævar Ingi Jóhannesson og Úlfar Valsson skoruðu mörk KA.

Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði KA, fékk að líta rauða spjaldið frá Leikni Ágústssyni, dómara leiksins, en það kom þó ekki að sök fyrir KA-menn. Bæði lið eru með sjö stig og sigla lygnan sjó um miðjan riðilinn.

Þetta var þriðji og síðasti leikur dagsins í A-deild Lengjubikarsins en fyrr í dag vann Víkingur Ólafsvík 1:0 sigur á ÍBV og Skagamenn lögðu Fjarðabyggð 4:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert