Ólafsvíkingar unnu Eyjamenn

Steinar Már Ragnarsson var í byrjunarliði Víkings.
Steinar Már Ragnarsson var í byrjunarliði Víkings. Árni Sæberg

Víkingur Ólafsvík bar sigurorð af ÍBV 1:0 í A-riðli Lengjubikarsins í hádeginu. Kenan Turudija, nýr liðsmaður Ólafsvíkinga, skoraði sigurmarkið á 27. mínútu leiksins.

Ólafsvíkingar gátu tvöfaldað forystuna undir lok leiks þegar þeir fengu vítaspyrnu en Abel, markmaður Eyjamanna, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnu Egils Jónssonar.

Þetta var annar sigur Víkings á mótinu en liðið situr í 6. sæti riðilsins með sjö stig. ÍBV er sæti neðar með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert