Elín Metta í landsliðshópinn

Elín Metta Jensen.
Elín Metta Jensen. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu  hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Hollandi í vináttulandsleik í Kórnum á laugardaginn.

Freyr hefur valið Elínu Mettu Jensen, úr Val, í hópinn og kemur hún í stað Hólmfríðar Magnúsdóttur sem er meidd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert