Everson til liðs við KA

Bjarni Jóhannsson þjálfar KA-menn.
Bjarni Jóhannsson þjálfar KA-menn. Ljósmynd/Jóhann Már Kristinsson

KA-menn eru stórhuga og þeir halda áfram að safna liði fyrir átökin í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar.

Fram kemur á vef félagsins í dag að það hafi samið við enska framherjann Ben Everson um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Ben er 27 ára gamall og er íslenskum knattspyrnuáhugamönnum af góðu kunnur en hann hefur spilað með Tindastóli, Breiðabliki og BÍ/Bolungarvík en á síðustu leiktíð spilaði hann í Svíþjóð.

Hann er væntanlegur til landsins á næstu dögum og stefnt er að því að hann verði kominn með leikheimild þegar KA tekur á móti Gróttu í Lengjubikarnum á fimmtudag.

Þjálfari KA-manna er Bjarni Jóhannsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert