Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson sem lék með Fram á síðasta tímabili í Pepsi-deild karla í knattspyrnu er genginn í raðir norska C-deildar félagsins Notodden en hann hefur verið í viðræðum við félagið síðustu daga.
Guðmundur lék tólf leiki með Fram í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili þegar liðið féll úr deildinni og skoraði fimm mörk.
Guðmundur er uppalinn í Val en hann hefur einnig spilað fyrir Víking Ólafsvík og HK hér á landi.