Eiður skallaði markslána (myndskeið)

Eiður Aron Sigurbjörnsson í leik á síðasta sumri með ÍBV …
Eiður Aron Sigurbjörnsson í leik á síðasta sumri með ÍBV gegn Fylki. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundssn

Eiður Aron Sigurbjörnsson, leikmaður Örebro, tók út gremju sína á markslánni eftir eitt þriggja marka liðsmanna Sundsvall í viðureign liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Örebro tapaði, 3:1.

Eftir að Eiði og félögum í vörninni misheppnaðist að verjast einni af sóknum Sundsvall-liðsins, sem endaði með marki, endaði Eiður Aron sprett sinn á að stökkva upp og skalla markslána.

Atvikið hefur vakið mikla athygli en það má sjá á myndskeiði sem hér fylgir með. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert