Komast KR-ingar á toppinn?

Bjarni Guðjónsson þjálfari KR-inga ræðir við aðstoðar dómara.
Bjarni Guðjónsson þjálfari KR-inga ræðir við aðstoðar dómara. mbl.is/Golli

Þráðurinn verður tekinn upp að nýju í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í dag og kvöld en þrír leikir fara fram i 5. umferð deildarinnar í dag.

KR-ingar geta skotist í toppsætið  en liðið tekur á móti botnliði ÍBV. KR er í þriðja sæti deildarinnar, er stigi á eftir Stjörnunni og tveimur stigum á eftir toppliði FH en Íslandsmeistarar Stjörnunnar taka á móti FH-ingum í stórleik umferðarinnar annað kvöld.

Leikir dagsins:

17.00 KR- ÍBV
19.15 Valur - Fjölnir
19.15 Keflavík - Fylkir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert