„Lífsnauðsynlegur sigur fyrir okkur“

Óskar Örn Hauksson var einn af betri leikmönnum KR þegar liðið lagði Keflavík í 17. umferð Pepsi deildar karla i Bítlabænum í kvöld. Óskar sagði Keflvíkinga hafa verið erfiða viðureignar, en að sama skapi skildi hann lítið í því að hans menn hafi ekki skorað meira þetta kvöldið.  

Óskar sagði að leikurinn hafi verið nokkurskonar úrslitaleikur fyrir bæði lið og lífsnauðsynlegt fyrir KR að taka sigur til þess að halda lífi í toppbaráttunni.

Viðtalið við Óskar Örn í heild sinni má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert