Átti að skora fleiri mörk

„Við fengum fullt af færum í fyrri hálfleik sem okkur tókst ekki að nýta,“ sagði Gunnar Már Guðmundsson leikmaður Fjölnis eftir 1:1 jafntefli við Stjörnuna í 18. umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Ég átti til dæmis að skora fleiri mörk, fékk fín færi til þess og svo áttum við að fá vítaspyrnu þarna í lokin. En það má ekki segja neitt um dómarana,“ sagði Gunnar Már.

„Við bökkuðum allt of mikið og Stjarnan komst inn í leikinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem það gerist hjá okkur að við föllum of mikið til baka og fáum á okkur mörk,“ sagði markaskorarinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert