Brjálaður blaðamaður truflaði Ragnar

„Það eru helvítis læti í honum. Ég skil ekki af hverju þeir taka hann ekki bara í burtu,“ sagði Ragnar Sigurðsson, sem átti bágt með að einbeita sér að viðtali við mbl.is vegna láta í tyrkneskum blaðamanni.

Blaðamanninum var greinilega mikið niðri fyrir, á þessari gleðistund hjá tyrkneska karlalandsliðinu í knattspyrnu, sem vann Ísland og tryggði sér farseðilinn á EM. Hvorki Ragnar né blaðamaður mbl.is áttaði sig á því hvað það var sem angraði hann. Ragnar reyndi sitt besta til að svara nokkrum spurningum en sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert