Spila með sorgarbönd

Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Lettum á laugardaginn.
Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Lettum á laugardaginn. mbl.is/Golli

Fyrir leik Tyrklands og Íslands í undankeppni EM karlalandsliða 2016 í kvöld verður fórnarlamba sprengjuárásanna í Ankara í Tyrklandi minnst með táknrænum hætti. 

Fyrir leikinn verður einnar mínútu þögn á leikvanginum og munu leikmenn beggja liða jafnframt bera sorgarbönd í leiknum.

Árásirnar áttu sér stað síðastliðinn laugardag og samkvæmt fréttum létust um eitt hundrað manns og á fimmta hundrað særðist.  Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska liðsins, vottaði tyrknesku þjóðinni samúð sína fyrir hönd íslenska landsliðsins á fjölmiðlafundi í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert