Landsliðið í æfingabúðir í Abu Dhabi

Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck mbl.is/Golli

KSÍ greinir frá því á vef sínum að karlalandsliðið í knattspyrnu mun halda  í æfingabúðir til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum dagana 10.- 17. janúar, þar sem leiknir verða tveir vináttulandsleikir.

Íslendingar mæta Finnum þann 13. janúar og stefnt er því að spila annan leik þremur dögum síðar. Báðir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV.

Þar sem ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða er ljóst að ekki eiga allir þeir leikmenn, sem leika með erlendum félagsliðum, möguleika á að taka þátt í þessu verkefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert