Sigurhrina Charlton stöðvuð

Jóhann Berg Guðmundsson
Jóhann Berg Guðmundsson Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Charlton Athletic sem mætti Ipswich Town á heimavelli sínum The Valley í 18. umferð ensku B deildarinnar í knattspyrnu í dag.

Lokatölur í leiknum urðu 3:0 fyrir Ipswich. 

Jóhann Berg lék í stöðunni fyrir aftan framherjann hjá Charlton og átti fínan leik. 

Charlton hefur farið illa af stað í deildinni í vetur og er aðeins einu stigi frá fallsæti og gæti setið í fallsæti síðdegis í dag.

Charlton hafði reyndar unnið síðustu tvo leiki sína í deildinni og voru taplausir í síðustu fimm leikjum sínum í deildinni áður en kom að leiknum í dag. 

Jóhann Berg hefur leikið sautján leiki fyrir Charlton í deildinni í vetur og skorað í þeim leikum tvö mörk og lagt upp fimm mörk fyrir liðsfélaga sína. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert