Gunnleifur spilar ekki

Gunnleifur Gunnleifsson með boltann.
Gunnleifur Gunnleifsson með boltann. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gunnleifur Gunnleifsson glímir enn við meiðsli í baki og verður ekki með íslenska landsliðinu í leiknum gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Dubai á morgun.

Gunnleifur átti að byrja inná í leiknum við Finna í Abu Dhabi í fyrradag en hann fékk tak í bakið og hefur ekki jafnað sig að því er Heimir Hallgrímsson tjáði mbl.is. Ingvar Jónsson stóð á milli stanganna í fyrri hálfleiknum og Haraldur Björnsson leysti hann af hólmi í síðari hálfleik.

Leikurinn við Sameinuðu arabísku furstadæmin fer fram á Al Maktoum vellinum í Dubai og hefst klukkan 14.20 að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert