Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður að öllum líkindum kynntur sem nýr leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Molde á morgun en norskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag.
Eiður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Shijiazhung Ever Bright í kínversku deildinni eftir síðustu leiktíð.
Hann hefur verið í viðræðum við Molde síðustu daga en Ole Gunnar Solskjær, þjálfari liðsins, lýsti yfir áhuga sínum á að fá Eið í sínar raðir.
Molde mun kynna nýjan leikmann á morgun og eru norskir fjölmiðlar vissir um að það sé Eiður sem verður kynntur á blaðamannafundinum.