Prúð lið heiðruð á ársþingi KSÍ

Frá knattspyrnumóti FC Sækó í fyrra.
Frá knattspyrnumóti FC Sækó í fyrra. mbl.is/Kristinn

Breiðablik og ÍA fengu Dragostytturnar á ársþingi KSÍ í dag.  Þá fengu KV, KFS og Kóngarnir viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.

Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna.  Í Pepsi-deild karla er einnig tekið tillit til háttvísismats eftirlitsmanna KSÍ.  Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2., 3. og 4. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í 1. deild karla.

FC Sækó hlaut Jafnréttisverðlaunin

FC Sækó hlaut Jafnréttisverðlaun KSÍ við sama tilefni. Fótboltaverkefnið Geðveikur fótbolti og fótboltaliðið FC Sækó byrjaði í nóvember 2011 og er samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, geðdeildar Landspítalans og Hlutverkaseturs.

Verkefnið felst í því að íbúum í búsetukjörnum fyrir geðfatlaða, notendum á geðsviði Landspítalans og Hlutverkaseturs ásamt starfsfólki stendur til boða að æfa fótbolta. Markmiðið er að efla heilsu og virkni ásamt því að veita jákvæðan og uppbyggilegan félagslegan stuðning.

Verkefnið fékk strax mjög góðar viðtökur og mættu 15-20 einstaklingar að jafnaði hvern einasta mánudag og eru enn að í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert