Garðar skoraði þrennu

Ármann Smári Björnsson, Garðar Bergmann Gunnlaugsson o.fl.
Ármann Smári Björnsson, Garðar Bergmann Gunnlaugsson o.fl. Hilmar Bragi Bárðarson

Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði þrjú mörk þegar ÍA mætti Grindavík í fyrsta leik liðanna riðli 3 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í dag. Lokatölur í leiknum urðu 5:0 Skagamönnum í vil.

Ágúst Marteinsson braut ísinn fyrir ÍA og Garðar Bergmann bætti við þremur mörkum áður en Stefán Teitur Þórðarson rak síðasta naglann í líkkistu Grindavíkur. 

Garðar Bergmann var valinn í leikmannahópi íslenska landsliðsins sem mætti Finnlandi, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Bandaríkjunum í síðasta mánuði og spilaði þá sinn fyrsta A-landsleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert