Guðmundur sá um ÍBV

Keflavík lagði ÍBV.
Keflavík lagði ÍBV. Hilmar Bragi Bárðarson

Keflavík sigraði ÍBV 1:0 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag en leikið var í Reykjaneshöllinni.

Þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu en Þorvaldur Örlygsson og hans menn fara ágætlega af stað.

Guðmundur Magnússon sá til þess að ná í þrjú stig fyrir Keflavík í dag. Mark hans kom á 58. mínútu leiksins og þar við sat.

Lokatölur því 1:0 og Keflavík því tímabundið á toppnum með 3 stig eftir fyrstu umferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert