Karlalið ÍBV í knattspyrnu hefur samið við danska sóknarmanninn Simon Kollerup Smidt um að leika með liðinu næstu tvö árin.
Leikmaðurinn var á reynslu hjá félaginu fyrr í mánuðinum og spilaði meðal annars úrslitaleikinn í Fótbolta.net mótinu gegn KR.
Smidt er uppalinn hjá danska liðinu Vejle en hann lék síðast með Fylingsdalen í C-deild norska fótboltans.
Smidt er annar Daninn sem Eyjamenn semja við fyrir þetta tímabil en í byrjun febrúar sömdu þeir við sóknarsinnaða miðjumanninn Mikkel Maigaard Jakobsen.