Þeir sem klúðruðu miðakaupum fá annan séns

Íslenskir stuðningsmenn ætla að fjölmenna til Frakklands í sumar.
Íslenskir stuðningsmenn ætla að fjölmenna til Frakklands í sumar. mbl.is/Golli

Hluti þeirra Íslendinga sem sóttu um miða á leiki í lokakeppni EM karla í knattspyrnu næsta sumar, en fengu synjun vegna þess að kreditkortagreiðsla gekk ekki í gegn, fær annað tækifæri til að kaupa miða.

Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag en þar segir að UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, muni hafa beint samband við viðkomandi aðila og skýra næstu skref. Einungis þeir umsækjendur sem freistuðu þess að fá miða koma til greina og því geta nýir aðilar ekki sótt um miða nú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert